laugardagur, janúar 02, 2010

* *

Músík Ársins 2009

Plötur

#1: Röyksopp - Junior



#2: Jay Z - Blueprint 3



#3: Kos - Yes



#4: Hjálmar - IV



#5: Classified - Self Explanatory


Lög Ársins 2009

#1: Promoe - Svennebanan
#2: Röyksopp - Happy Up Here
#3: Saigon - The Rules
#4: Dusty Kid - The Cat
#5: Timbuktu - Dom Hinner Aldrig Ikapp
#6: Kos - I Wish I Knew Natalie Portman
#7: Jay Z - A Star Is Born
#8: Röyksopp - Vision One
#9: Jay Z - Empire State Of Mind
#10: Hjálmar - Taktu Þessa Trommu

fimmtudagur, desember 31, 2009

* Gott Stuff *

Myndir Ársins 2009


Inglourious Basterds
Nánast óaðfinnanleg mynd Tarantino um afdrif hersveitar bandarískra gyðinga í seinni heimstyrjöldinni. Lúkkar vel, góð saga og flottur endir. Hverjum öðrum dettur í hug að tæta Hitler í sundur með vélbyssu í lokaatriði myndar?


Vicky Cristina Barcelona
Vafalaust ein besta mynd ársins. Önnur tveggja Woody Allen mynda sem að ég tel hafa skarað fram úr á árinu. Talandi um afköst, maðurinn frumsýnir (á Íslandi) tvær myndir og báðar þeirra komast á listann.


Whatever Works
Þessi mynd kom mér eiginlega á óvart. Woody Allen með Larry David í aðalhlutverki. Hef um nokkurt skeið núna, verið aðdáandi þeirra beggja. En hélt að þessi mynd myndi missa marks sökum samsetningarinnar. Svo var ekki. Vafalaust "Feel-Good" mynd ársins.



The Girlfriend Experience
Steven Soderbergh kemur með vafalaust eina af umdeildustu myndum ársins. Með klámstjörnu í aðahlutverki fylgdarkonu. Verulega heillandi í alla staði þessi mynd. Raunverulega flott samtöl.



Anvil
Heimildarmynd um þrautsegju tveggja kanadískra rokkara. Verulega áhugaverðar persónur sem öllum þykir vænt um. Maður vildi eiginlega ekki að hún endaði.


Næstar á listann: Public Enemies, Up, Food Inc, Bjarnfreðarson, Avatar, Transformers 2 og The Hangover.

þriðjudagur, ágúst 18, 2009

* Fred Funk *


*Fred Funk*

Fred Funk fæddist 14. júní í Maryland fylki í Bandaríkjunum. Útskrifaðist árið 1981 frá Háskóla Maryland sem lögreglumaður en vann sem golfkennari þangað til árið 1989 þegar að hann komst á PGA túrinn. Síðan þá, hefur hann ekki unnið neitt sérstaklega mikið á mótaröðinni, en tókst þó árið 1992 einusinni að komast inn á topp 20 lista golfara. Þó hefur hann tvisvar sinnum verið í landsliði Bandaríkjanna og einusinni tekið þá í hinum margfræga Ryder bikar. Hér er árangur hans í stórmótum.

Tournament 1985 1986 1987 1988 1989
The Masters DNP DNP DNP DNP DNP
U.S. Open T23 CUT CUT DNP CUT
The Open Championship DNP DNP DNP DNP DNP
PGA Championship DNP DNP T47 DNP DNP

Tournament 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999
The Masters DNP DNP DNP CUT T38 DNP T36 T17 CUT CUT
U.S. Open DNP CUT T33 T7 T44 CUT CUT T43 DNP CUT
The Open Championship DNP DNP 73 DNP DNP DNP DNP DNP DNP WD
PGA Championship DNP T57 CUT T44 T55 T39 T26 T61 T23 73

Tournament 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009
The Masters T37 DNP DNP CUT CUT CUT CUT CUT DNP DNP
U.S. Open CUT T44 DNP T35 6 T23 T40 T30 DNP 60
The Open Championship CUT DNP DNP CUT DNP CUT T66 DNP DNP DNP
PGA Championship T9 T70 T4 T7 CUT T47 T20 CUT DNP DNP

mánudagur, júlí 27, 2009

* Sprettur / 230 *



Sprettur á Facebook


230 á Facebook

*Athugið Það *

miðvikudagur, júní 03, 2009

* Varúð Garðaúðun *







* Sterk Athugun *
Vantar þig, eða einhvern sem að þú þekkir, eða einhvern sem að þú þekkir ekki, eða bara einhvern. Hringdu þá núna, eða láttu einhvern sem að þú þekkir hringja núna, eða láttu einhvern sem þú þekkir ekki hringja núna. Strax í dag, ekki seinna en á morgun og helst í gær.

mánudagur, maí 11, 2009

* Ofsalegt *

* Dýrasta Ljósmynd Allra Tíma *

Þetta fannst mér alveg svakalegt. Einhver snillingur í hvíta húsinu ákvað að senda forsetaflugvélina í myndatöku yfir New York, án þess að láta yfirvöld vita þar. Það sem að þeir svo sáu var farðþegaflugvél á svamli yfir borginni. Þeim leist ekki neitt á það og gerðu herinn tilbúinn og sendu nokkrar vélar, að mig minnir í loftið. Allt á fullu. En allavegana, þá náðu þeir þessari mynd og er áætlað að hún hafi kostað Bandaríkin um 327000$ eða rúmlega 41 miljón íslenskar krónur. Spurning hvort það hefði ekki verið betra að "photoshopp-a" myndina bara. Það hefði líklegast litið betur út og kostað nánast ekki neitt. Ekki það að mér finnist neitt um þetta annað en að það sé fyndið, en þetta er líklegast ekki það sem að þjóðir/fólkið þarf á að halda í efnahagsmeynni. 

miðvikudagur, apríl 29, 2009

* Hvað Er Þetta ? *

* Ósmekklegt *

Það er alveg ótrúlegt hvað sum fyrirtæki/samtök fara langt í að reyna að koma fólki úr jafnvægi með auglýsingum sínum. Hvað varð um að semja einhverja auglýsingu með sniðugu lagi? Hvað varð um að setja fram staðreyndir og fá fólk til þess að taka réttar ákvarðanir samhliða? Nú virðist þetta allt snúast um að koma fólki úr jafnvægi. Segi bara fyrir mína parta það að mér finnst að Samtök Iðnaðarins hafi ekki neitt merkilegt að segja með þessari auglýsingu. Þetta er alveg svakalegt. Hræðsluviðbjóður fyrir ekki neitt ? Ég held það...